15.5.2007 | 15:08
Fundur með Hverfaráði Háaleitis 10. apríl 2007
Fyrir hönd íbúasamtakanna voru mætt Birgir Björnsson, Valgerður Solveig Pálsdóttir, Guðmundur K. Sigurgeirsson og Ólafur Jóhannsson.
Frá hverfaráði voru eftirtaldir mættir: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður, Þórunn Benný Birgisdóttir og Hrefna Sigurjónsdóttir áheyrnafulltrúi Vinstri grænna. Jafnframt sat fundinn Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis og Helgi Hjartarson, deildarstjóri
Fundurinn hófst kl. 12.30. Eftirfarandi málefni voru rædd.
- Staða íþróttafélagsins Fram í hverfinu rædd.
- Umferðamál við Háaleitisbraut voru rædd og hvernig mættir lækka hraða við götuna.
- Miklabraut var rædd og mengun frá henni.
- Göngustígur á milli Háaleitisbrautar og Síðumúla var ræddur og lofaði hverfaráð að þrýsta á að hann yrði hreinsaður og lagfærður.
- Fækkun bensínstöðva í hverfinu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:42 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.