29.1.2009 | 13:14
Bókun Íbúasamtaka Háaleitis við samþykkt samráðshópsins
Íbúasamtök Háaleitis sátu hjá við atkvæðagreiðslu í samráðshópnum. Að beiðni ÍH var eftirfarandi bókun skjalfest. Rétt er að halda þessu til haga og þeim sjónarmiðum sem í henni koma fram.
Bókun íbúasamtaka Háaleitis
Íbúasamtök Háaleitis vilja að stokkalausn verði samfelld frá Kringlumýrarbraut, í
gegnum Háaleiti og austur fyrir Grensásveg. Heilsufarslegar afleiðingar fyrir íbúa og þá
ekki síst börn og unglinga í Háaleitishverfi , vegna loft- og hljóðmengunar frá umferð
sem streymir í gegnum hverfið um Miklubraut eru hinar sömu og í öðrum nálægum
hverfum. Tillaga samráðshópsins felur ekki í sér lausnir fyrir íbúa Háaleitishverfis.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.